Silja

09.02.2007 10:38:16 / Silja

Ný síða!!!

Ný síða!

www.siljast.bloggar.is/

 

 

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 22:58:05 / Silja

1. Janúar 2007

Hæ fólk

Mikið búið að vera í gangi:)

  • Próflok
  • Jólafrí
  • Jólahlaðborð!! jeijj
  • Andri kom heim:):*
  • Ég að vinna mikið í Korninu(á þorlák, aðfanga og annan í j.)
  • Skólinn byrjar aftur eftir 2 daga:) Loksins!!:D
  • Engin bekkjarpartí í des hjá X-bekk?  lame:S
  • Jólin voru skemmtileg, fullt af fínum gjöfum + góður matur;)
  • Áramótin bara róleg:) Guðrún frænka kom og það var svaka stuð hjá okkur!;);)  Svo kom Andri og við bara slöppuðum af!

Resta kannski með góðum myndum:D

Munda, Sibba, ég og Anna á Jólahlaðborðinu:**

Guðrún sæta frænka og ég á gamlárs;)

**Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna!**

2007


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 23:12:54 / Silja

1. des:)

Hæhæ:)  Núna eru bara að fara að byrja prófin hjá mér..  ég tek 2 próf! hehe og verð komin í jólafrí þá 8.des!  Frekar flott?!

Í gærdag var jóladagur í skólanum:D  vá hvað ég dýrka fólkið í þessum skóla!  Já, við skreyttum stofuna okkar, þó ekki eins mikið og í fyrra(sem betur fer) og fengum einhver verðlaun fyrir móttökur, fínasta strákinn sem var Baddi og svo einhvað annað held ég:D  Þessi dagur var vel heppnaður:)

Ég, Munda og Anna;)

Ég, Helga og Anna Kristín fórum á Rockstar tónleikana um kvöldið.  Vá hvað það var gaman!  Í fyrsta lagi þá hittum við Toby, ég verð bara alveg eins og kleina í kringum frægt fólk:S  við stelpurnar fórum gjörsamlega yfir um!!

Toby, ég og Anna sæta;**

Svo var spilað stanslaust til 12!  vá ég hefði geta drepið einhvern til þess að fá vatn!  En já, vá þetta voru bara bestu tónleikar sem ég hef farið á!!!

Núna eru nákvæmlega 2 vikur í að Andri minn komi heim, er að deyja úr spenningi;)  Sakna þín kallinn minn:*

6 dagar í jólafrí:D

Ég minni á www.autobahn.is sem er nýja nemendafélagssíðan okkar sem Steindór og Atli tölvukall eru búnir að vera að svitna yfir síðustu mánuði;) flott flott

Ég er líka orðin svakalega spennt fyrir jólahlaðborðinu okkar í Hraðbraut!  Ætla ekki allir að fara???

Silja er hætt að blogga núna.

Lag núsins: Wham - Last Christmas

Helga með áritun frá Toby!:P


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 00:44:03 / Silja

11.nóv

Hæ,
þá er eins og venjulega.. liðin langur tími síðan ég bloggaði síðast.
Það sem hefur kannski mest gerst er að ég er stúdent í Þýsku!! **Klapp-Klapp**
Fór í ferð til Danmerkur að hitta Andra minn, sem var frábært:* Nema kannski sá partur að ég átti að fljúga heim kl.22:10.. en það breyttist vegna eðal-veðurs á Íslandi í 04:00. En þar sem flugvöllurinn Kastrup loka kl. 22 þurfti mín að bíða þar í nokkra klukkutímana:S smá svona "mood-breaker".
Fyrir utan það að hitta Andra minn í Danmörku, fórum við í bíó og sáum eflaust skemmtilegustu mynd ársins, BORAT! Við erum að tala um það að ég öskraði af hlátri;) vel heppnað það! Sakna Andra:*:*

Svo vorum við Anna mín svo sniðugar að fatta það á síðustu stundu að við vildum fara á Rockstar-tónleikana. Þannig að þá byrjaði stressið, að hamast á miði.is. Við fengum fljótt miða, en óheppilegt slys sem inniheldur Apple-tölvu varð til þess að miðarnir "hurfu".. Anna BESTA;);):*:* En svo á endanum fengum við miða!!!:D JEIJJ!! svo að við förum 30.nóv á tónleikana!! En svo 10 mín seinna var auglýst uppselt á miði.is = Heppnar!

Svo var voða gaman í skólanum í dag... NOT(haha Borat!) Ég varð frekar fúl.. kennararnir hafa sumir svona fíling að skamma mig fyrir öll þau læti sem eru í stofunni...
Dæmi 1. Ísleifur og Steindór eru að leika með tappa.. Steindór hótar að henda í mig.. ég bið hann að sleppa því = ég er skömmuð!
Dæmi 2. Steindór spyr að einhverju.. ég segi ha? = ég er skömmuð!
Er ég að bjóða uppá vesen eða?? Why ME??

Niðurtalningar
34 dagar þar til Andri minn kemur heim til mín!:* Elska þig!
19 dagar í Rockstar-tónleikana!!
26 dagar MINNST í jólafrí:)

Lög Núsins
Trabant - The One
Interpol - Specialist
Magni - The Dolphins Cry

p.s. ég á bestu vini í heimi!! Dýrka ykkur!;)
Bæjó Spæjó


Góð ferð!!


Ég og Anna mín;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 22:04:42 / Silja

15. október

Hæhæ!

Ég fór með Birnu á Árshátíð nr.1 hjá MR síðasta fimmtudag. Vá það var svo gaman!! Fyrst þá fórum við í fyrirpartí útá Seltjarnanesi, það var mjög skemmtilegt! Kynntist fullt af nýju fólki. Magni og Á móti sól voru að spila á Brodway og þeir voru geggjað góðir! Hef aldrei komið inná Brodway áður..:$ en vá hvað staðurinn er stóór!! En já.. það var rosa gaman!



Ég, Begga og Birna!

Svo á föstudagskvöldið var stelpukvöld heima hjá mér! Við keyptum alltof mikið af nammi og snakki! Ég, Anna Kristín, Munda og Björg horfðum á video og létum eins og bjánar;) Við þurfum að gera þetta bráðum aftur stelpur!!: )


Sætar!!

Lag núsins: Snow Patrol - Chasing Cars.
20 dagar þar til að ég hitti Andra í DK!!

Silja St.


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 23:34:35 / Silja

18. sept

Núna er langt síðan ég bloggaði..

Þetta er helst hjá mér síðastliðinn mánuð:

  • Fór að vinna á Friday's
  • Byrjaði í skólanum
  • Náði öllu og er núna í fríviku
  • Hitti Heiðrúnu og Valgerði á æði slúðurkvöldi
  • Skemmtilegur busadagur í Hraðbraut!
  • Ekkert busaball?
  • Fór mikið í bíó
  • Fór mikið í búðir(sjaldan með Önnu samt!;))
  • Prison Break byrjað!  Gaman:D
  • Fór með Sif, Söru og Beggu í Nunnuklaustur
  • Er orðin sjúk í Imogen Heap
  • Svekkt yfir endanum í O.C
  • Á ekta-plat eyrnalokka núna, CHANEL;)

Ég held að ég geri þennann lista ekki langdregnari.  Hins vegar hafa verið mörg afmælisbörn upp á síðkastið og ætla ekki að gera lista yfir það svo ég gleymi engum, en til hamingju með daginn, kossar og knús;*;*;*

Talandi um afmælisbörn.. ég verð afmælisbarn eftir 4 daga:)  og í tilefni af því þá fer ég með Andra mínum, M&P og einhverjum ættingjum að veiða í Skógá frá miðvikud. til fimmtd.  Ég vona að það verði mjög gaman:)

Sjáumst, Silja St.

Anna Kristín, Björg og ég á góðri stund;)

Ég og Andri minn í gamla daga:)

Lögin mín:

  • Imogen Heap - Hide and Seek
  • Magni - I Alone
  • Na na na na naa - Kaiser Chiefs

» 15 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 12:41:03 / Silja

9. ágúst

Hæ!

Núna er liðinn ansi langur tími síðan ég bloggaði;)  Það hefur margt verið í gangi hjá mér síðan..

Skólinn byrjar eftir nákvæmlega 5 daga og ég verð að segja að ég er pínu kvíðin:$  ætli maður sé ekki bara alltaf svona spenntur!  Núna á eftir er ég einmitt að fara að kaupa bækur.. fyrir þýsku, líffræði og stærðfræði8|

En svo 2. ágúst síðast liðinn átti hún Birna sæta afmæli!  Til hamingju með það:** Orðin 17 ára!!:*:*

~Birna og ég á Franz Ferdinand~

Verslunarmannahelgin var bara mjög skemmtileg hjá mér!  Ég fór vestur á Látra á föstudeginum þarsem mér og foreldrum mínum var boðið í brúðkaup daginn eftir.  Það var bara svaka stuð!  Ég elska brúðkaup!  en svo á lauardagskvöldinu þegar við yfirgáfum brúðkaupið ákváðum við að skella okkur bara aftur í bæinn!  og það gerðum við.. ég bauð Kareni far þá... en NEI hún vildi ekki koma;)   Þannig að restin af helginni var bara tjill og næsheit hjá mér:)

En eins og ég sagði áðan þá fer að styttast í skólann og ég ætla að vera í fríi þar til það gerist!

~Krúttlegi bekkurinn minn:*~

Hafið það gott, ég trúi ekki að sumarið sé að enda.

Lag núsins:  Goo Goo Dolls - Iris

Silja St.


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 23:14:25 / Silja

Video:)

 

Er loksins búin að setja videoið inn! 

Klikkið HÉR til að skoða það!

Þú ert ágæt Karen;)

Silja St.

 

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 17:47:43 / Silja

15. JÚNÍ

Núna er liðinn svolítið langur tími síðan ég bloggaði síðast..  og það sem hefur helst verið í gangi hjá mér er vinna, fótbolti, brúðkaup, heimkoma Andra og fótboltadjamm.

Vinnan er ágæt svosem.. þetta er allt að verða svolítið þreytandi:S  En núna erum við tvær stelpurnar í hópnum mínum... ég og Linda.  En fyrir utan það eru Togga og Védís oft með okkur;)  En þær stöllur eru búnar að vera í London síðustu viku..(öfundsjúk).  Samt er allt í fínó að vinna:)  það gerir maður á sumrin!

Svo um síðustu helgi fór ég í brúðkaup hjá frænda mínum honum Óla Þór.  Það var sko ein skemmtilegasta veisla sem ég hef farið í!  og þau voru svo fín líka!!  Skemmtilegt við svona brúðkaup að þjónarnir bara bera í mann áfengi án þess að hug útí það að maður sé svolítið mikið undir aldri;)  sniðugt..

Í gærkveldi var HK/Víkings-djamm heima hjá Kötlu!  Það var geggjað stuð!  fórum í drykkjuleiki og tókum myndaflipp og allt tilheyrandi!  En já... það var rosalega gaman!!  Stelpurnar blönduðu meira að segja Mohito, sem var bara ferlega gott!!;)

Ég held að það sé komið nóg í bili!  Ég setti myndirnar inn á www.picturetrail.com/siljast/    og bæti seinna við skemmtilegu videoi sem Arna K og Karen gerðu!  Enjoy:)

Silja í stuði!

Arna og Anna sætu:D

Takk í bili:)

SILJA ST.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 14:25:22 / Silja

18. júní

Þá er ég loksins komin í sumarfrí!  Ég náði mjög vel öllum prófunum og er bara ánægð með það!  

Föstudagurinn

Þá fór ég í síðasta prófið sem var íslenska.  Það gekk bara mjög vel!:)  Held að það hafi bara verið almenn ánægja með það.  En svo fórum við öll í Bláa Lónið!  Ég, Tinna og Vera vorum saman í bíl, komum fyrstar og fórum bara ofaní.. en létum samt alla bíða eftir okkur:/   Það var kannski ekki besta veðrið, rok og rigning... en það var bara allt í lagi!

Eftir Bláa Lónið fórum við nokkur úr bekknum og fengum okkur ís í Hafnafirðinum og létum svo illa það að það var sussað á okkur.  Vandræðalegt..

Laugardagurinn

17. júní.  Fór með mömmu á Rútstún og heilsuðum upp á fólkið.  Svo var kaffi heima hjá frænku minni og ég var þreytt og sofnaði í sófanum:S

Um kvöldið fórum við Tinna Borg niðrí miðbæ og fylgdumst þar með slagsmálum og fleiru skemmtilegu:)  en það var ekki mikil stemming þar þannig að við ákváðum að fara heim..  Skelltum okkur á Rútstún.. en þar var það ekki mikið betra..  

Við fórum og sóttum Veru og rúntuðum um bæinn:)  Svaka gaman hjá okkur!

Á morgun er ég að fara að byrja í bæjarvinnunni... hef ekki hugmynd hvar ég lendi:S  vonandi í góðum hóp! Svo virðist veðrið vera að lagast svo að mér finnst ég ekki hafa misst af neinu;)

Það eru 5 dagar þangað til Andri minn kemur heim!  Það verður frábært að hitta hann aftur, er ekki frá því að ég hafi saknað hans svolítið mikið mikið!!

Lag núsins:  Fort Minor – Where’d You Go.

 

 

 

Gleðilegt sumar

Silja St.


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 19:13:29 / Silja

4. júní

:) 

Ég var að koma heim núna frá Þorlákshöfn að keppa í 2.fl. 7 manna á móti Ægi.  Þar sem þær voru Íslandsmeistarar í 7 manna í fyrra, bjuggumst við við hörkuleik.  En nei...  þetta var bara lélegt sko:D  hehe en við unnum þessa Íslandsmeistara 7-6!  En þetta var alveg svakalega dramatískt!  hehe við vorum kallaðar öllum illum nöfnum!  bara nefndu það!!;)  En ég er bara stolt af okkur HK/Víkings-stelpunum að klára þetta bara!!!

En einmitt af gefnu tilefni klæddumst við dömurnar "flottu"  HK/Víkings búningunum..!  ójá:)  þessum rauð-gul röndóttu;)  Hér tekur hún Karen sig vel út í dressinu;)

Núna á þriðjudaginn fara stelpurnar í 2. og meistaraflokki til Ítalíu:)  Ég kemst því miður ekki með þar sem ég er ennþá í skólanum:S 

En já ég vil bara óska stelpunum góðrar ferðar og ég vona að þið skemmtið ykkur vel!!  Vinnið þetta!!!

Sumarið fer nú að byrja almennilega og ég segi bara ÁFRAM HK!

Sjáumst

Silja St.


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 20:31:50 / Silja

30. maí

Jæja, þá er 3 vikan í þessari lotu byrjuð:)  Þetta líður svo hratt!! 

Ég  skellti mér með nokkrum úr bekknum í keilu síðasta miðvikudagskvöld sem var æðislega gaman!  Fórum svo og fengum okkur ís, hlóum að fullorðnum manni sem gleymdi að taka "æfingarakstur" merkið af bílnum, vorum stoppuð af löggunni, fórum í körfubolta og í pool:)  Það var svo gaman! og mér finnst að við ættum að gera eitthvað saman miklu oftar!!

Svo fórum við líka í "Njáluferð" í dag..  ég svaf mest alla leiðina:$  en það var alveg ágætis ferð.  Er búin að setja myndir úr ferðinni inn:)

Svo núna eru 24 dagar þar til Andri kemur heim til mín:) Sem ég er svo spennt fyrir!!

En núna 17 dagar þar til við á fyrra ári í hraðbraut förum í sumarfrí! Jeeii!!  Svo verður eitthvað gert þann æðislega dag 16.júní hjá hraðbrautarlingum!!:haha: er það ekki annars??

Ég hef samt leiðinlegar fréttir að færa..  því hún Stella mín, sæta labrador-voffastelpan mín, er búin að slíta krossband og þarf að fara í aðgerð til að laga það..  Ég veit ekki hvernig hún hefur eiginlega farið að því..  Maður verður bara að vona það besta:|

Lag núsins:  Greta Mjöll Samúelsdóttir - Ó María.

Have a nice one:)

Silja kveður


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 20:03:09 / Silja

15. maí.

 Frívikan

Þar sem ég náði öllum prófunum með stæl;)  fór mín í fríviku!!!  Það var æðislegt..  ég kíkti í Keflavík til Köru og við misstum okkur í sólbaði, trampolíni og nammi!  Svo var ég eiginlega bara að gera mig tilbúna fyrir Danmerkurferðina.

Danmerkurferð

Ég er komin heim.  Ég fór síðasta föstudag til Danmerkur að hitta hann Andra minn.  Þetta var æðisleg ferð!  Við lentum frekar seint á föstudeginum og fórum því mjög fljótlega að sofa.  Daginn eftir fórum við Andri að skoða höllina í Hillerød og vorum bara eitthvað að labba um bæinn.  Svo um kvöldið fórum við á ítalskan veitingastað og fengum æðislegan mat!  Seinna um kvöldið skelltum við okkur svo í bíó að sjá Mission Impossible.  Þetta var svaka skemmtilegt kvöld.  Á sunnudeginum sváfum við skötuhjúin frekar lengi;)  Svo um kvöldið var flugið mitt heim til Íslands.  Þetta var stutt en samt sem áður frábær ferð!!!

Skólinn

Núna er byrjuð lota 7 sem er síðasta lota fyrir sumarfrí!! Ég kemst þá ekki í sumarfrí fyrr en 16. júní... svolítið seint en allt í lagi:)  Þessi lota verður samt held ég frekar leiðinleg..  Vegna þess að núna förum við í Þýsku 203, Íslensku 303 og Dönsku 203.  En hinsvegar eru allir svo hressir í skólanum að það er allt í lagi8)

Reunion

Vá ég er klikkað spennt fyrir þessu að hittast í sumar!  Þá vona ég bara að það komi allir!!:) ætli maður minni þá ekki bara á síðuna www.blog.central.is/apimedp/  

Lag núsins:  Bubbi - Við Gróttu 

 

Hér eru nokkrar myndir:)

Billede018.jpg

Ég og Andri. Fín að fara út að borða:) Love you:*

IMG_2490.jpg

Haha, Andri í SuperLover bolnum sínum.. gæji ekki satt???;)

Svo nokkrar síðan 2005 <3

Við stelpurnar á útskriftinni

Togga, ég og Birna í vorferðinni:D

~ Good Times ~

Silja





» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 08:42:31 / Silja

3 maí 2006

Í dag er frábær dagur.  Fyrir utan það að prófin byrja hjá mörgum í dag.  Gangi ykkur vel!!

Í dag erum við Andri minn búin að vera saman í 2 ár!:*

Ég elska þig ástin mín!:* og ég sakna þín svo mikið!

~~*~~

~~*~~

 

Silja kveður

p.s. Til hamingju með daginn Valgerður sæta!;*


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 23:32:47 / Silja

28. apríl

Sumar og Skóli

Lag núsins: Queen – Don’t Stop Me Now

Núna nýlega hefur verið allt brjálað að gera.  Ég meina það bókstaflega.  Ritgerðir, kaflapróf, skýrslur og allt þar á milli.  Prófin byrja á miðvikudaginn 3. maí.  En þar sem ég minnist á 3. maí..  góður dagur:)  Hún Valgerður góð vinkona mín á afmæli og ætlar sér að verða 18 ára þá, til hamingju með það sæta!!  svo er líka það að þá erum við Andri Geir búin að vera saman í 2 ár:)  Þannig að þetta verður góður dagur!

 

Danmerkurferð                                                                                               

Ég mun skella mér í helgar með með mömmunni og pabbanum 12. maí og er mjög spennt fyrir því.  Þá mun ég hitta manninn minn sem maður er nú farinn að sakna svolítið mjög mjög mikið!  Áætlunin er að knúsa kallinn eins mikið og ég get því að hann er svo sætur!  En það er nú ekkert langt þar til hann kemur alveg heim.  Það er nú bara 23. júní.  Hlakka mikið til!

 

Hamingjuóskir                                                                                                    Vil bara óska Gulla og Hildi innilega til hamingju með litlu snúlluna sem heitir svo fallegu nafni, Ester Ósk:)

Þar sem besta vinkona mín, hún Kara mín er svo dugleg bara má ég til með að óska henni innilega til hamingju með það að vera komin í U-18 landsliðið í körfubolta!!!  Hún er svo dugleg snúllan mín!!  Smelli inn einni mynd af kjellunni;)

IMG_2214_c.jpg

 

 

Tónlist                                                                                                                 Ég hef verið að spá í þessu nýlega.  Hvers vegna manni finnist ákveðin gerð af tónlist góð og önnur glötuð.  Ég persónulega er mikill Doors aðdáandi og held einnig upp á Hljóma og hann Bowie vin minn.  Það veit ég að sumum finnst spes.  En hvað er fólk þá að fíla..  er málið ekki bara að hlusta á það sem lætur manni líða vel?  Bara svo ég taki dæmi þá get ég ekki hlustað á rapp.  Skil ekki afhverju, en þannig er það bara.  Ég er að átta mig á því að ég er komin út í svolítið rugl núna..  þannig að ætli maður segi það ekki bara gott í dag og segi bless.

 

Enda þetta með smá myndum:

Ég og Anna:)  Góðir tímar!  Við þurfum að fara að hittast!!;)

Besta sumar lífs míns hingað til!!  Með besta fólki í heimi!  HK er æði!

Silja Stefnis.

Beste Grüβe

» 22 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3